Fyrir hönd Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis heldur Mæðrastyrksnefnd utan um reglubundnar úthlutanir utan jólaaðstoðar. Hægt er að sækja um aðstoð allt að fjórum sinnum á ári, auk jólaaðstoðar. Einungis er tekið við einni umsókn fyrir hvert heimili, t.d. sækja hjón um saman (ekki um hvort í sínu lagi) og börn yfir 18 ára sem búa í foreldrahúsum sækja ekki um sér.
Athugið að einstaklingar sem ekki tala íslensku gætu verið boðaðir á öðrum tíma og annan stað, vegna aðstöðu til túlkunar.
Í júlí eru ekki reglubundnar úthlutanir og þá bendum við fólki á að leita til presta í Þjóðkirkjunni.
Í samstarfi við Höld-Bílaleigu Akureyrar er nú hægt að sækja um styrki vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna og ungmenna. Nánari upplýsingar má nálgast í viðtölum hjá fulltrúum sjóðsins og á rafrænu umsóknaeyðublaði.