Hvernig sæki ég um jólaaðstoð?

Göngugatan á aðventunni. Mynd: Herdís Helgadóttir.
Göngugatan á aðventunni. Mynd: Herdís Helgadóttir.

Með tilkomu nýrrar heimasíðu færist umsóknaferli fyrir jólaaðstoð hjá Velferðasjóði Eyjafjarðarsvæðis yfir á rafrænt form. Vonast er til að þetta einfaldi ferlið bæði fyrir umsækjendur og aðstandendur sjóðsins.

Fólk sem ekki hefur aðgang að tölvu eða getur af öðrum orsökum ekki sótt um rafrænt getur einnig hringt í 570 4090 milli kl. 10:00 og 13:00 frá 28. nóvember til og með 2. desember.

Eins og fyrir síðustu jól er sótt um á einum stað hjá jólaaðstoðinni. Samstarfsaðilarnir sameinast um að styðja þig með þátttöku fyrirtækja og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu.

Tekið er á móti umsóknum til og með 2. desember.

Sækja um aðstoð