Aðalfundur Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðis var haldinn þriðjudaginn 13. maí 2025 í Glerárkirkju. Á fundinum var skýrsla stjórnar kynnt og ársreikningur lagður fram til samþykktar. Auk þess var ný stjórn skipuð.
Í skýrslu stjórnar kom meðal annars fram að vonum framar gekk að safna fyrir jólaaðstoðinni 2024. Jólaaðstoð er stærsta einstaka verkefni sjóðsins en hún hefur þó lítið stækkað á milli ára síðustu ár. Það eru úthlutanirnar á öðrum tímum árs sem eru gríðarlega vaxandi verkefni og þar eykst eftirspurnin hratt. Sjóðurinn gæti styrkt mun fleiri og um mun meira, ef meira myndi safnast, en nauðsynlegt hefur verið að setja takmörk á það hversu oft hver einstaklingur getur sótt aðstoð á hverju ári.
Áfram hefur áhersla verið lögð á að nýta heimasíðuna til að halda utan um umsóknir. Þetta hefur auðveldað ferlið fyrir bæði umsækjendur og þau sem koma að utanumhaldi. Enn er og verður þó einnig hægt að hringja og bóka viðtal fyrir þau sem ekki nýta sér rafrænar lausnir.
Á fundinum var tilkynnt um tilnefningar aðildarfélaganna í stjórn. Fráfarandi stjórn var skipuð eftirfarandi einstaklingum: Fyrir hönd Hjálpræðishersins: Herdís Helgadóttir, varamaður Lárus Óskar Sigmundsson. Fyrir hönd Rauða krossins: Kristín Björk Gunnarssdóttir, varamaður Baldvin Valdemarsson. Fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar: Snjólaug Ósk Aðalsteinsdóttir, varamaður Sumarrós H. Ragnarsdóttir. Fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar: Kristbjörg Álfhildar Sigurðardóttir, varamaður Guðmundur Guðmundsson.
Ný stjórn er skipuð eftirfarandi einstaklingum: Fyrir hönd Hjálpræðishersins: Lárus Óskar Sigmundsson, varamaður Guðlaugur Pálmason. Fyrir hönd Rauða krossins: Kristín Björk Gunnarssdóttir, varamaður Baldvin Valdemarsson. Fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar: Sumarrós H. Ragnarsdóttir, varamaður Þórunn Arnórsdóttir. Fyrir hönd Hjálparstarfs kirkjunnar: Kristbjörg Álfhildar Sigurðardóttir, varamaður Guðmundur Guðmundsson.
Fráfarandi stjórnarliðum, Herdísi og Snjólaugu, er þakkað kærlega fyrir störf sín í þágu sjóðsins og fyrir gott samstarf.