Jólaskraut með mikilvægan tilgang

Mynd: Herdís Helgadóttir
Mynd: Herdís Helgadóttir

Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis, Glerártorg og Slippurinn kynna spennandi samstarf í aðdraganda jólanna.

Jólin nálgast og vonandi vekur sú tilhugsun upp gleði og tilhlökkun hjá sem flestum. Hátíð ljóss og friðar, tími notalegra samverustunda með fjölskyldu og vinum. Við vitum þó að jólin geta valdið mörgum áhyggjum af ýmsum ástæðum. Fjárhagslegir erfiðleikar geta gert fólki erfitt að halda gleðileg jól og þess vegna er mikilvægt að fólk í slíkri stöðu geti nálgast aðstoð.

Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og nágrennis og Rauða krossins við Eyjafjörð. Sjóðurinn aðstoðar efnaminni einstaklinga og fjölskyldur bæði fyrir jólin og á öðrum tíma árs en reynslan sýnir að eftirspurnin eftir aðstoð er mest í aðdraganda jólanna. Samtals fengu 474 heimili og einstaklingar jólaaðstoð árið 2022 og var það mikil fjölgun umsókna milli ára. Búast má við því að enn fleiri umsóknir berist fyrir jólin þetta árið, en í reglubundnum úthlutum sjóðsins árið 2023 höfum við séð að þörfin fyrir og eftirspurn eftir aðstoð hefur stóraukist.

Hannað á Glerártorgi, framleitt í Slippnum

Í ljósi aukinnar eftirspurnar eftir aðstoð hefur stjórn sjóðsins, í samstarfi við Glerártorg og Slippinn, ráðist í spennandi fjáröflunarverkefni, sölu á jólaskrauti til styrktar sjóðnum.

„Þetta hefur gerst hratt og það er frábært að finna velviljann í garð sjóðsins,“ segir Herdís Helgadóttir, formaður stjórnar sjóðsins. „Tíminn frá hugmynd í tilbúna vöru hefur verið ótrúlega stuttur og hér eru engin vandamál, bara lausnir! Framlag Slippsins í söfnunina er fallegt jólaskraut sem Kristín Anna Kristjánsdóttir og Elva Ýr Kristjánsdóttir, verkefnastjórar markaðsmála á Glerártorgi hönnuðu. Skrautið er úr stáli og á því eru mörg hjörtu sem öll tengjast. Þetta finnst mér falleg tilvísun í að velferð er verkefni okkar allra, eins og slagorðið okkar segir.“ Stálið sem notað er í skrautið er afgangsefni sem annars færi í endurvinnslu, til að lágmarka umhverfisáhrif verkefnisins. „Þið verðið samt að bíða aðeins lengur eftir því að fá að sjá skrautið, það fáið þið að sjá á styrktarviðburðinum!“

Laugardaginn 11. nóvember kl. 13-15 verður viðburður á Glerártorgi þar sem starfsemi sjóðsins verður kynnt og sala á skrautinu hefst. Athugið að jólaskrautið kemur í takmörkuðu upplagi. Skrautið má svo annað hvort hengja á þar til gert styrktartré á Glerártorgi eða taka með heim. „Svo er það auðvitað líka tilvalin jólagjöf.“

Hver króna skiptir máli

Stjórn Velferðarsjóðs á Eyjafjarðarsvæðinu vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem leggja starfinu lið. Án þessa mikla velvilja í samfélaginu væri ekki hægt að styrkja efnaminni heimili á svæðinu með þeim hætti sem nú er gert. Ykkar stuðningur er ómetanlegur og hver einasta króna skiptir máli.

Þeim sem vilja styrkja jólaaðstoð Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis er bent á eftirfarandi söfnunarreikning:

Kt. 651121-0780
Rn. 0302-26-003533