Opnað hefur verið fyrir umsóknir um jólaaðstoð. Opið verður fyrir rafrænar umsóknir til og með 3. desember.
Athugið að nauðsynlegt er að skila staðgreiðsluyfirliti með umsókninni. Ef umsækjandi er í hjónabandi eða sambúð þarf einnig að skila fyrir maka. Hér má finna leiðbeiningar um það hvernig nálgast má staðgreiðsluyfirlit.
Öllum umsóknum verður svarað. Ýmist verður haft samband í tölvupósti eða í síma. Athugið að ekki öllum umsóknum er svarað á sama tíma og ekki allir umsækjendur fá úthlutun á sama tíma.