Velferðarsjóður Eyjafjarðar hefur á morgun (Laugardagur 08.11.25) sölu á Velferðarstjörnunni, sem er samstarfsverkefni sjóðsins, Glerártorgs og Slippsins. Þetta er þriðja árið í röð sem stjarnan er seld en Elva Ýr Kristjánsdóttir og Kristín Anna Kristjánsdóttir, verkefnastjórar markaðsmála á Glerártorgi, hafa hannað nýtt útlit stjörnunnar fyrir þessi jól og Slippurinn framleiðir líkt og fyrri ár.
„Velferðarsjóður Eyjafjarðar hefur það að markmiði að starfa allt árið og safna fjármunum sem varið er óskiptum til stuðnings við einstaklinga og fjölskyldur sem á þurfa að halda árið um kring. Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að mæta grunnþörfum efnaminni fjölskyldna til að koma í veg fyrir að fjárhagslegir erfiðleikar ógni heilsu þeirra og þátttöku í samfélaginu,“ segir í tilkynningu frá sjóðnum.
Ráðgert er að héðan í frá verði ný hönnun stjörnunnar kynnt á hverju ári sem og því ekki ólíklegt að fólk taki upp á því að safna henni.

Salan á Velferðarstjörnunni hefst kl. 13.00 á morgun, laugardaginn 8. nóvember, á Glerártorgi „og er mikilvæg viðbót við fjáröflun sjóðsins. Allir sem koma að verkefninu gefa vinnu sína og öll innkoma sem kemur í sjóðinn rennur óskipt til efnaminni einstaklinga og fjölskyldna.“
Ástsælt tákn samstöðu og kærleika
„Velferðarstjarnan er fallegt og merkingarbært jólaskraut og mikilvægur hluti af fjáröflun Velferðarsjóðsins,“ segir Guðný Jóna Þorsteinsdóttir ráðgjafi hjá sjóðnum og Kristín Björk Gunnarsdóttir formaður stjórnar Velferðarsjóðsins bætir við: „Salan hefur ekki einungis gengið vel síðustu tvö árin heldur hefur hún vakið mikla og jákvæða athygli á Velferðarsjóðnum. Segja má að hún hafi orðið ástsælt tákn samstöðu og kærleika í aðdraganda jólanna.“

Stjörnur í Slippnum! Frá vinstri, Elva Ýr Kristjánsdóttir, Kristín Anna Kristjánsdóttir, Björn Böðvarsson og Krístín Björk Gunnarsdóttir.
Það var vegna vaxandi eftirspurnar um aðstoð síðustu árin að ráðist var í þetta verkefni; í þessa hlýju og skapandi fjáröflun, eins og þær Kristín Björk og Guðný Jóna orða það. „Okkur hefði ekki tekist það nema fyrir velvilja þeirra hjá Glerártorgi og starfsmanna Slippsins sem leggja málefninu lið með sínu ómetanlega framlagi,“ segir Kristín Björk. „Við lítum á Velferðarstjörnuna sem tákn um samstöðu, hlýju og von – þau gildi sem einkenna bæði jólin og samfélagið á Eyjafjarðarsvæðinu. Við hvetjum íbúa Eyjafjarðarsvæðisins til að kaupa stjörnuna og styðja þannig við þau sem þurfa á hjálp að halda í aðdraganda jólanna.“
VELFERÐARSJÓÐUR EYJAFJARÐAR
Í tilkynningu frá Velferðarsjóðnum segir að með dyggum og ómetanlegum stuðningi fyrirtækja, félagasamtaka, einstaklinga og annarra hafi tekist að sinna aðstoð allt árið um kring. Reynslan sýni að spurn eftir aðstoð aukist verulega í aðdraganda jólahátíðarinnar, það sem af er ári hafi sjóðurinn úthlutað rúmlega 500 sinnum og búist sé við öðrum eins fjölda umsókna fyrir þessi jól líkt og á síðasta ári.
„Allir styrkir og allt fé sem safnast í sjóðinn verður notað óskipt til kaupa á gjafakortum í matvörubúðum sem afhendist efnaminni fjölskyldum og einstaklingum á Eyjafjarðarsvæðinu,“ segir í tilkynningu sjóðsins.
Skapti Hallgrímsson